Kærar þakkir fyrir stuðninginn
Kærar þakkir fyrir stuðninginn





UNGI 2026 — Alþjóðleg Sviðslistahátíð fyrir börn
23.–26. apríl 2026 í Reykjavík


Um UNGA
Kærar þakkir fyrir komuna á UNGA 2026
UNGI hefur verið haldin frá árinu 2013 og var þetta 9. hátíðin nú í ár. Hátíðin stóð að þessu sinni í 4 daga, frá 23.-26. apríl 2026. Boðið var upp á níu leiksýningar, sex íslenskar og þrjár erlendar sýningar frá Litháen, Luxembourg og Noregi. Yfir 2.000 gestir komu á sýningar og viðburði. Hátíðin var einkar fjölbreytt að þessu sinni með sirkussýningar, danssýningar, uppistand, brúðusýningar og sýningar fyrir börn á aldrinum 6 mánaða til 16 ára
Sviðslistasýningar fyrir börn eru mikilvægur þáttur í menningaruppeldi okkar og flest okkar muna sína fyrstu leikhúsferð. Sviðslistirnar spyrja ekki um uppruna, tungumál eða bakgrunn barna. Þær einfaldlega veita barninu innsýn í töfraheim sem er fullur af ævintýrum, gleði og boðskap um betri heim.
Kæru börn - Þakkir fyrir komuna á UNGA
Lárus Vilhjálmsson
formaður Assitej á Íslandi
